Lokum Lönguhlíð

Það er löngu komin tími á að loka Lönguhlíð við Miklubraut. Það er alltof mikill tími og mengun sem fer til spillis þarna við gatnamótin af bílum sem eru stopp allan daginn.

Það yfrði þá útfært þannig að einungis verði leyfðar hægri beygjur inn og út af Lönguhlíð við Miklubraut en ekki umferð yfir Miklubraut um Lönguhlíð. Einnig yrði lokað fyrir vinstri beygjur af Miklubraut inn Lönguhlíð.

Þarna eru undirgöng til staðar nú þegar, svo ekki er vandamál með gangandi vegfarendur, spurning að bæta kannski eitthvað aðgengi í göngin. Ég er samt nokkuð viss um að fólk í hlíðum kvartar og kveinar yfir þessari hugmynd. En eftir nokkurn tíma verður fólk ánægt með þetta þegar gegnumstreymis umferð minnkar töluvert.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband