29.3.2009 | 20:37
Tvöföld atkvæðagreiðsla sjálfsögð
Það er sjálfsagt að kjósa tvisvar. Það er mikill sparnaður fólginn í því, ef það er fellt í fyrstu kosningunni um hvort hefja eigi aðildarviðræður eða ekki. Þá er óþarfi að vera að hóa saman sendinefnd til að semja um eitthvað sem enginn áhugi er á hvort eð er.
Ef svo ólíklega vill til að samþykkt væri að fara í aðildarviðræður þá hefði sendinefndin ákveðið umboð frá þjóðinni til að leita samninga. Þeir samningar yrðu svo að sjálfsögðu líka bornir undir atkvæði.
![]() |
Tvöföld atkvæðagreiðsla tilgangslítil |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Mér finnst reyndar að stjórnmálaflokkarnir ættu að hafa skýra stefnu í þessu. Helst hefði ég viljað að sjálfstæðisflokkurinn hefði ákveðið að ganga til viðræðna með skýr markmið og láta á það reyna hvort við næðum þeim fram. Greiða síðan atkvæð þegar niðurstaðan liggur fyrir.
Þorsteinn Sverrisson, 29.3.2009 kl. 21:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.