17.12.2013 | 14:11
Gleymdist á sínum tíma
Seðlabankinn gleymdist á sínum tíma þegar aðrir ríkisbankar voru seldir. Og hafði það skelfilegar afleiðingar sem rétt sér fyrir endann á. Honum tókst að koma stýrivöxtum í 18% og er það sjálfsagt heimsmet í afglöpum efnahagsstjórnunar. Afglöpin halda áfram, nú eru stýrivextir 6%, mörgum sinnum hærri en í þeim löndum sem við miðum okkur við. Og samt eru gjaldeyrishöft enn við lýði. Maður spyr hvað er verið að gera með svona stofnun?
Vill skoða breytt hlutverk Seðlabankans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.