Ekki auðvelt að skipta um banka

Ástæðan er auðvitað sú að það er ekki auðvelt að skipta um banka á Íslandi. Ef öll viðskipti eru í einum banka og hugmyndin er sú að fara í annan. Þá þarf að borga lántökukostnað af lánum sem flutt eru á milli. Það þarf að endurnýja kort og sjálfvirkum greiðslum þarf að segja upp og stofna aftur. Og ýmislegt fleira vesen. Þar að auki er engin munur þannig lagað á bönkunum hérlendis og lítill hagur í að skipta um. Einn möguleikinn að skipta væri í raun ef einhver erlendur banki kæmi hingað eða lögum yrði breytt og einstaklingum væri leyft að vera með viðskiptabanka erlendis.


mbl.is Halda tryggð við bankan sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Júlíus Már Baldursson

Og það verður seint sem það gerist hér á landi....það er eins og það megi alls ekki vera neitt ódýrt til hér.

Júlíus Már Baldursson, 29.10.2013 kl. 18:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband