Þróun í samræmi við stefnu borgaryfirvalda

Stefna borgarinnar í dag er að koma fólki úr miðbænum. Bankarnir bregðast eðlilega við þessu með því að flytja í jaðar miðbæjarins. Kæmi ekki á óvart þá Landsbankinn færi líka að hugsa sér til hreyfings og eftir örfá ár verði einungis 2 lítil útibú eftir í miðbænum til að þjónusta ferðamenn og gangandi vegfarendur.

Það er spurning hvort maður eigi að hafa áhyggjur af þróuninni. Er ekki bara eðlilegt að fólk sæki þjónustu í nærumhverfi frekar en að þvælast milli bæjarhluta. Ég sé fyrir mér að miðbærinn er að verða eitthvað ekki fyrir venjulega íslendinga, nema þá á kvöldin. Þar verði ferðamannaverslanir, pöbbar, veitingastaðir og einstaka sérverslanir.

Svo er reyndar spurning hvort þessi breyting nái inn í Borgartún líka, þegar fólk verður orðið þreytt á umferðarstíflum þar, eftir nýjustu skemmdarverk, og fyrirtæki færi sig lengra austur.


mbl.is Tvö bankaútibú í miðborginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband